Hjálpræðisherinn trúfélag

Hjálpræðisherinn er skráður sem trúfélag á Íslandi og hefur verið það frá árinu 2012. Hjálpræðisherinn býður upp á almennar kirkjuathafnir eins og barnablessun, fermingu, brúðkaup og jarðarfarir.

Þau sem skrá sig í trúfélagið styrkja starfið fjárhagslega með því að sóknargjöldin (sem eru hluti af skatti allra skattgreiðenda) renna til Hjálpræðishersins. 

Hægt er að skrá sig í trúfélagið á vefsíðu Þjóðskrár. Hver skráning skiptir okkur máli.

Hjálpræðisherinn fagnaði á dögunum 130 árum á Íslandi og hefur á þeim tíma unnið á fjölbreyttan hátt til að fylgja köllun sinni, allt eftir því hver þörfin er í samfélaginu hverju sinni.

Hjálpræðisherinn er alþjóðleg evangelísk hreyfing, hluti af hinni almennu kristnu kirkju.  Boðskapurinn grundvallast á Biblíunni. Þjónustan er knúin af kærleika Guðs. Verkefnið er að boða fagnaðarerindi Jesú Krists og í hans nafni mæta þörfum fólks án mismununar. (Alþjóðleg yfirlýsing Hjálpræðishersins / The Salvation Army Mission Statement)