Hermannavígsla

Nýjir hermenn Hjálpræðishersins á Íslandi
Nýjir hermenn Hjálpræðishersins á Íslandi
Það var sannkölluð gleðistund þegar Hjálpræðisherinn á Íslandi tók á móti sjö nýjum hermönnum inn í samfélagið okkar. Þetta er stór og merkilegur áfangi – ekki aðeins fyrir þau sem stigu þetta mikilvæga skref, heldur einnig fyrir okkur öll sem tilheyrum Hjálpræðishernum.

Að verða hermaður í Hjálpræðishernum er meira en titill. Það er yfirlýsing um trú, köllun og viljann til að lifa lífi í þjónustu við Guð og náungan. Þessi dagar voru fullir að gleði þar sem nýju hermennirnir staðfestu skuldbindingu sína og við sem samfélag fengur að standa með þeim, hvetja og fagna.

Það er alltaf innblástur að sjá einstaklinga stíga fram með opið hjarta og tilbúna til að leggja sitt af mörkum í starf sem snýst um kærleika, von og hjálp. Við trúum því að hver og einn þeirra nýju hermannana verði ljós í nærumhverfi sínu.

Við erum þakklát fyrir þessa sjö nýju hermenn og hlökkum til að sjá hvernig Guð mun leiða þau áfram í þjónustu og vexti.
“Guð þekkir sjálfur þær fyrirætlanir sem ég hef í hyggju með yður, fyrirætlanir til heilla en ekki til óhamingju, að veita yður vonarríka framtíð.” (Jer 29:11)

Velkomin í hermannafjölskylduna.