Skráning í fermingarfræðslu á Hjálpræðishernum 2020-2021

Ferming
Ferming
Fræðslan hefst í lok september 2020 og verður í alls 8 skipti fram á vorið. Kennt er á laugardögum. Farið er í fermingarfræðsluferð til Jeløy í Noregi vikuna 4.-10. október 2020. Kostnaður við ferðina er eini kostnaður við fermingarfræðslu á Hjálpræðishernum. Fermingardagar eru eftir samkomulagi. (Athugið hægt er að sækja um styrk í velferðarsjóð fyrir ferðinni).