Vegna neyðarfundar um mannúðarkrísu

Sögulega stór hópur félagasamtaka stóð í síðustu viku saman að neyðarfundi til að ræða þá mannúðarkrísu sem upp er komin með framkvæmd nýrra útlendingalaga sem sviptir hóp fólks allri þjónustu. Samtökin höfðu áður gefið út yfirlýsingu þar sem lýst var áhyggjum af afdrifum, öryggi og mannlegri reisn þessa hóps og lýst yfir efasemdum um að framkvæmd laganna standist mannréttindaskuldbindingar sem íslensk stjórnvöld hafa undirgengist. Í framsögum fulltrúa samtakanna komu fram lýsingar á sárri neyð skjólstæðinga þeirra sem og skilaboð frá einstaklingum sem sviptir hafa verið allri þjónustu. Skýr samstaða var um mikilvægi þess að fresta framkvæmd þjónustusviptingarinnar þar til mannúðlegri lausn hefur verið fundin. Þá var ljós andstaða framsögumanna um hugmyndir um varðhaldsbúðir, sem viðraðar hafa verið í fjölmiðlum nýlega. Skorað var á stjórnvöld að nýta þekkingu og reynslu samtakanna sem og sjónarmið þeirra sem finna sig í þessum aðstæðum við lausn vandans. Samtökin munu áfram ræða saman og freista þess að fá svör stjórnvalda við þeim spurningum sem fram komu á fundinum.  

 

Barnaheill – save the children  

Biskup Íslands 

EAPN á Íslandi 

FTA - félag talsmanna umsækjenda um alþjóðlega vernd  

Fríkirkjan í Reykjavík 

Geðhjálp  

GETA hjálparsamtök  

Hjálparstarf kirkjunnar 

Hjálpræðisherinn á Íslandi  

Íslandsdeild Amnesty International  

Kvenréttindafélag Íslands  

Mannréttindaskrifstofa Íslands  

No Borders 

PEPP grasrót fólks í fátækt 

Prestar innflytjenda og flóttafólks hjá þjóðkirkjunni  

Rauði Kross Íslands  

Réttur barna á flótta  

Rótin  

Samhjálp  

Samtökin 78  

Siðmennt  

Solaris  

Stígamót  

Þroskahjálp  

UN WOMEN  

UNICEF  

W.O.M.E.N. – samtök kvenna af erlendum uppruna 

Öryrkjabandalag Íslands – heildarsamtök fatlaðs fólks á Íslandi