
Starfið er í fríi í júlí, fylgist með okkur á Facebook til að sjá hvenær starfið hefst í ágúst.
Hjálpræðisherinn á Akureyri flutti í byrjun árs 2022 í nýtt húsnæði að Hrísalundi 1 a. Miklar endurbætur hafa á síðustu mánuðum verið gerðar á húsnæðinu svo það henti starfsemi Hjálpræðishersins betur. Sem dæmi má nefna lyftu til að bæta aðgengi fyrir hreyfihamlaða. Hægt er að leigja salinn fyrir veislur og viðburði.
Lára Ósk Hlynsdóttir og Jóhanna Sif Hannesdóttir sjá um vikulegt starf flokksins.
Í Hjálpræðishernum á Akureyri er rík hefð fyrir barna- og unglingastarfi. Velferðarkaffi er á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 9:30. Á dagskrá flokksins er eitthvað fyrir alla aldurshópa og alla fjölskylduna. Dagskrá Akureyrarflokks má nálgast hér.
Hjálpræðisherinn á Akureyri er á Facebook og á Instagram undir notandanafninu herinnak.
Hjálpræðisherinn á Akureyri er aðili að Velferðarsjóði Eyjafjarðar. Nánari upplýsingar um sjóðinn og velferðaraðstoð má nálgast hér. Einnig geta einstaklingar leitað til Hjálpræðishersins á Akureyri til að fá úthlutað inneignarkorti í Hertex.
Lára Ósk Hlynsdóttir
lara@herinn.is