Við í Hjálpræðishernum í Reykjavík erum að hefja nýjung hjá okkur með því að taka upp biblíulestrarplan. Markmiðið með því er að hjálpa okkur að vera markviss í lestrinum, skapa reglufestu og auðvelda okkur að lesa sömu texta á sama tíma. Þannig getum við átt sameiginlegan grundvöll til samtals, bænar og uppörvunar. Biblíulestrarplan getur orðið verkfæri sem leiðir okkur dýpra inn í orð Guðs og hjálpar okkur að tileinka okkur það í daglegu lífi.
Það er bæði dýrmætt og uppbyggilegt að lesa saman í Biblíunni, sérstaklega texta eins og um alvæpni Guðs í Efesusbréfinu 6:10–20. Sá kafli minnir okkur á að lífið er ekki aðeins ytri barátta heldur líka andleg, og að Guð hefur gefið okkur það sem við þurfum til að standa stöðug. Við erum kölluð til að klæðast sannleikanum, réttlætinu, trúnni og orði Guðs — ekki í eigin mætti heldur í krafti Drottins.
Að lesa þennan texta saman skapar tækifæri til samræðu og dýpri skilnings. Þegar við ræðum um belti sannleikans, brynju réttlætisins, skjöld trúarinnar og sverð andans, fáum við að spegla hvernig þessi myndmál birtast í daglegu lífi okkar. Hvernig getum við staðið stöðug í áskorunum? Hvernig styðjum við hvert annað í trúnni? Í sameiginlegum lestri styrkjumst við í einingu og minnumst þess að við stöndum ekki ein í baráttunni.
Við hvetjum alla til að taka þátt og lesa með — hvort sem það er heima, með fjölskyldu, í vinahópi eða í safnaðarstarfi.
Hægt er að nálgast biblíulestrarplanið fyrir mars mánuð hér á síðunni á fjórum tungumálum.
Biblíulestrarplan ENSKA
Biblíulestrarplan ÍSLENSKA
Biblíulestrarplan NORSKA
Biblíulestrarplan SPÆNSKA